Það er svo skrítið hvað lífið er stundum fúlt
Manni finnst
allt vera á móti sér og allir í kring um sig farnir eitthvað og
enginn hjá manni...ekki það að það er örugglega líka hundleiðinlegt
að vera í kring um fólk í svona skapi
eins og ég er akkúrat í
núna..
Mamma, pabbi og Jóna systir og Þórunn Birna frænka mín voru
hér um helgina,,ég fór með litlu gellunum í bíó á Fíu fóstru á
laugardaginn,,,snilldarmynd og ég hvet alla að kíkja á hana
Finniði bara krakka og notið þá sem afsökun til að fara með á
þessa mynd!!!
Svo er Bjössi farinn á sjóinn,,

og mér hreinlega
langar ekkert til að vera heima hjá mér þegar hann er ekki
heima...það er allt eitthvað svo tómlegt og leiðinlegt..
Mér finnst þessa stundina hund leiðinlegt í vinnunni...mér
finnst hreinlega ekkert ganga upp hjá mér þar og núna fæ ég ekki
einu sinni sumarfríið mitt á þeim tíma sem ég óskaði eftir
En
allir aðrir fengu sitt
skil þetta stundum ekki,,,æji mér
finnst bara allt ömurlegt!!
Svo er Ragga vinkona að fara til Ameríku eftir helgi og ég vona
að hún slái þessu öllu nú bara upp í kæruleysi eins og henni einni
er lagið og taki tjúttið með mér um helgina... Okkur vinkonuhópnum
veitir nú ekkert af því að pilla okkur út á djammið og gera
einhverjar rósir
Það er sko kominn tími til!!
En hafið það gott,,og verið hress...kv. Ragnheiður